Í Höfnum á Reykjanesi eru að rísa smiðja og verbúð, byggðar með fornu verklagi. Húsasmíðameistari segir nauðsynlegt að halda þekkingunni við.Sveinn Enok Jóhannson, bóndi í Höfnum, hefur skipulagt námskeið í fornu handverki. „Við erum að smíða grind úr rekavið sem við söfnuðum. Grindin fer inn í hlaðið hús sem við hlóðum upp fyrir tveimur árum.“ BYGGIR NÁMSEFNIÐ Á VEGGJUM OG GÖRÐUM SEM ENN STANDA Fornverk varð til vegna þess að Sveinn fann aldrei tíma til að komast í Skagafjörð á grjóthleðslunámskeið. Hann greip til þess ráðs að hefja námskeið undir nafninu Fornverk í Höfnum. Verkefnið hefur hlotið styrki frá uppbyggingarsjóði Suðurnesja, Samfélagssjóði landsbankans og Húsafriðunarsjóði Minjastofnunar.„Ég bý á þessu rosalega fallega svæði með hlöðnum görðum og hrundum tóftum út um allt,“