Hvetur íbúa til að tilkynna öll innbrot

Fleiri innbrot í miðborg Reykjavíkur hafa verið tilkynnt til lögreglu í júlí en vant er. Formaður íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur hvetur nágranna til að fylgjast vel með.„Við höfum séð óvenju mikið af innbrotum þetta sumarið, meira heldur en við höfum gert undanfarin ár,“ segir Sigrún Tryggvadóttir, formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur.Samtökin sendu erindi til borgarstjóra sem brást við með því að efna til samráðsfundar á þriðjudag klukkan fimm. Sigrún hvetur fólk til að mæta þar sem innbrotin verða rædd á fundinum.Samtökin áttu einnig fund með lögreglu sem staðfesti að innbrot væru fleiri núna í júlí en síðustu ár. Flest eru innbrotin í miðborginni. Sigrún bendir fólki á að tilkynna öll innbrot. Hægt er að gera það á netinu hjá lögreglunni. RÁÐLEGGJA FÓLKI AÐ VERA EKKI MEÐ VERÐ
Hvetur íbúa til að tilkynna öll innbrot

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd