Vilja hjálpa öðrum að halda hárinu í minningu Laufeyjar

Vinir og fjölskylda konu sem lést úr brjóstakrabbameini fyrr á árinu vilja breyta erfiðri reynslu í von fyrir aðra. Þau safna fyrir búnaði sem dregur úr hármissi í krabbameinsmeðferð og finnst gott að geta aðstoðað í sínu sorgarferli.Laufey Tinna Guðmundsdóttir var 44 ára þegar hún lést í febrúar eftir að hafa greinst með brjóstakrabbamein átta árum fyrr. Hún fór í ýmsar meðferðir og þeim fylgdi að hún missti hárið sem henni þótti afar erfitt. SKIPTI MIKLU MÁLI FYRIR SJÁLFSMYNDINA „Það skipti hana miklu máli, því hún leit út fyrir að vera meiri sjúklingur. Þetta var meira upp á sjálfsmyndina,“ segir Þóra Elísabet Magnúsdóttir, vinkona Laufeyjar.„Þá gat hún bara verið hún sjálf og ráðið sjálf hvort hún talaði um sjúkdóminn. Þegar hún var ekki með hárið, þá var svo mikið af spurningum. Þe
Vilja hjálpa öðrum að halda hárinu í minningu Laufeyjar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd