Óttast að spilafíkn aukist mikið á næstu árum

Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ sem starfar í fjárhættuspilateyminu, telur að spilafíklum eigi eftir að fjölga mikið á næstu árum. Síðustu misseri hefur borið töluvert á auglýsingum á fjárhættuspila- og veðmálaþjónustum, til dæmis í kringum heimsmeistaramót karla í fótbolta.„Það er verið að setja mikið af fé í auglýsingar, bæði á samfélagsmiðlum og að fá áhrifavalda til að tala um íþróttaveðmál og láta umræðuna snúast um það eins og það sé rosa mikill hluti af þessu og svona skylda: Ef þú sért að horfa á leikinn þá sértu að betta [setja undir],“ segir Páll Heiðar.„Það er lögð áhersla á ungt fólk af því þú vilt fá kúnnann inn ungan. Ef þú þróar með þér spilafíkn þá er það langvinnur vandi. Það getur fylgt þér út lífið. Þannig að auðvitað viltu ná fólki snemma inn – því yngra því b
Óttast að spilafíkn aukist mikið á næstu árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd