„Auðvitað er það ekkert launungarmál að það gekk yfir óveður meðan á þessu stóð í gærkvöldi og svo sem eins á föstudagskvöldið líka. Þannig að aðstæður í firðinum almennt voru mjög óvenjulegar.“Þetta segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, einn skipuleggjenda Bræðslunnar sem haldin var á Borgarfirði eystri um helgina.Hann segir að þrátt fyrir illviðri hafi tónleikarnir farið vel fram í gærkvöldi. Áskell segir að fólk hafi gert ráðstafanir og hjálpast að.„Þetta hafði engin áhrif á stemninguna inni í húsinu í gærkvöldi, síður en svo. Fólk var inni allan tímann og naut tónlistar frá upphafi til enda í staðinn fyrir að vera að kíkja út annað slagið því það var ekkert útiveður.“Björgunarsveitin Sveinungi var fólki innan handar í óveðrinu. Formaðurinn Bergvin Snær Andrésson segir að vel hafi gengið á sv