Aðstæður í aðdraganda ákvörðunar íslenzkra stjórnvalda um að sækja um aðild að Evrópusambandinu (ESB) um mitt ár 2009 voru um margt ærið sérstakar og ólíkar aðstæðum nú, enda kom hún beint í kjölfarið á hruni fjármálakerfisins og búsáhaldabyltingunni svonefndu. Ótvírætt er þó að meirihluti kjósenda studdi ákvörðunina á þeim tíma sem hún var tekin (vorið/sumarið 2009), jafnvel þótt ákvörðunin um...