Suðurnesjabær hafnaði fyrir helgi beiðni Sólborga ehf. um milligöngu vegna afnota af Rockville-svæðinu vegna brottvísunarstöðvar stjórnvalda. Leit stendur yfir að bráðabirgðahúsnæði undir stöðina. Höfnunin felur ekki þó í sér afstöðu Suðurnesjabæjar til staðsetningarinnar.Beiðninni var hafnað þar sem hún fól í sér að ráðast hefði þurft í breytingar á aðalskipulagi, það sé vandkvæðum bundið fyrir sveitarfélagið að vera í milligöngu varðandi leigusamning við stjórnvöld vegna stöðvarinnar og að ekki þótti mögulegt að veita einum bjóðanda vilyrði umfram aðra.Sem stendur leitar dómsmálaráðuneytið að bráðabirgðahúsnæði undir brottvísunarstöðina og fjölskylduhúsnæðið sem verður aðgreint frá stöðinni. Stefnt er að opnun hennar 1. desember, þegar lög um stöðina taka gildi. Freyr Gígja Gunnarsson, u