Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur lokið sjö af 31 verkefni sem á að ljúka á 100 dögum, fyrir 10. september. Mörg stór verkefni eru eftir á listanum, borgarstjóri segir að staðið verið við loforð.2. júní kynnti meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks lista með 190 tímasettum verkefnum sem á að vinna á kjörtímabilinu Listinn er á vefsíðunni verkefnalisti.is og þar er hægt að fylgjast með framvindunni.31 þeirra á að ljúka á 100 dögum talið frá 2. júní - þ.e. fyrir 10. september. Í dag, 26. júlí, eru 54 dagar liðnir af þessu 100 daga tímabili. SJÖ BÚIN OG 24 ÓLOKIÐ Samkvæmt vefsíðunni er sjö af þessu 31 verkefni lokið. Meðal annars að endurskoða deiliskipulag Suðurlandsbrautar, tryggja óskertan opnunartíma frístundaheimila til klukkan 17, lækka gjöld um 50%