Starfsmaður á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum var handtekinn eftir að samstarfsmaður lýsti yfir grunsemdum um að hann hefði af ásetningi gefið konu of stóran skammt af morfíni með þeim afleiðingum að hún lést.Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði frá því í febrúar sem birtist nýlega á vef Landsréttar. Þar var ósk lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir starfsmanninum hafnað.Tveir starfsmenn voru handteknir í febrúar vegna andláts konu á tíræðisaldri á Hraunbúðum en rannsókn var hætt eftir að endanlegar niðurstöður bárust úr krufningarskýrslu. ENGIN LÆKNISFRÆÐILEG GÖGN Landsréttur byggði úrskurð sinn á því að engin læknisfræðileg gögn bentu til þess að andlátið hefði borið að með grunsamlegum hætti. Það eina sem varpaði sök á starfsmanninn væri f