„Það er þungt yfir þessarri samkomu og það byrjaði að rigna nánast um leið og dagskráin hófst, þannig að stemningin er eftir því,“ sagði Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir, sem er búsett í Berlín og er stödd við Brandenborgarhliðið.Boðað var til þessarar samkomu í morgun, eftir árásina á Gleðigönguna í Berlín í gærkvöld, þar sem ein kona lést og næstum þrjátíu manns særðust, þegar sendibíl var ekið inn í mannfjöldann nálægt Tiergarten svæðinu í miðborginni. Búist er við fólk safnist saman á fleiri samkomum í Berlín í dag. LÝSIR ÞESSU SEM HRYÐJUVERKAÁRÁS Lögregla handtók í morgun mann sem er grunaður um að vera viðriðinn ódæðið, en leitar enn að manni sem þýskir fjölmiðlar hafa nefnd Abdul B, og er talinn hafa ekið sendibílnum inn í mannfjöldann í gærkvöld. Sá maður er talinn vera með tengsl