Á fyrri helmingi ársins 2026 nam ný lántaka heimila með veði í íbúð á föstum vöxtum yfir 150 milljörðum króna, að miklum meirihluta óverðtryggt, samhliða því að þau voru í stórum stíl að greiða upp lán á breytanlegum kjörum. Þróunin er til marks um að heimilin óttast áframhald á viðvarandi verðbólgu og háu vaxtastigi.