Abdul Ballout, maðurinn sem grunaður er um að hafa ekið inn í þvögu fólks í Berlín í gærkvöldi, reyndi að ferðast til Sýrlands í fyrra. Hann var þó handtekinn í Líbanon og sendur aftur til Þýskalands, þar sem hann var í maí dæmdur í fangelsi. Hann var ekki byrjaður að afplána dóm sinn, vegna áfrýjunar, en hafði um tíma verið undir eftirliti lögreglu.