Einn handtekinn í tengslum við árásina í Berlín

Einn hefur verið handtekinn í tengslum við árásina í gleðigöngunni í Berlín í gær. Frá þessu er greint í þýskum fjölmiðlum.Ekið var inn í mannfjölda með þeim afleiðingum að kona lést og á annan tug særðist.Maðurinn sem var handtekinn er sagður vera með íranskan ríkisborgararétt. Hann sat í farþegasæti bílsins, að því er þýski miðillinn rbb24 greinir frá.Ætla má að ökumannsins sé því enn leitað. 21 árs karlmaður sem talinn er eiga tengsl við öfgahópa íslamista er grunaður um verknaðinn.Þúsundir hafa tekið þátt í víðtækri leit að honum. Lögreglan sagði í morgun að fólk hefði einnig verið stungið í árásinni. Hún varaði við því að maðurinn gæti verið vopnaður.
Einn handtekinn í tengslum við árásina í Berlín

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd