Slagsmál á Bræðslunni og gestir leituðu skjóls vegna óveðurs

Gestir á Bræðslunni á Borgarfirði eystra leituðu skjóls í yfirbyggðri sparkhöll í bænum vegna roks og rigningar í nótt.„Liðlega tvö leituðu fyrstu gestir Bræðslunnar aðstoðar vegna tjalda sem voru fokin eða ónothæf orðin vegna veðurs. Bætti aðeins í þann hóp eftir því sem leið á nóttina,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.Illa viðraði til útilegna í nótt og fyrrinótt í Borgarfirði þar sem fjöldi manns kom saman um helgina.Tvær tilkynningar bárust um slagsmál í nótt og hlynnt var að tveimur. Þau mál eru bæði til rannsóknar hjá lögreglu.Fréttastofa greindi frá því í gær að einnig hefði komið til slagsmála í fyrrinótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu kom til átaka á milli þeirra sem önnuðust gæslu á tjaldsvæðinu og gesta.Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglun
Slagsmál á Bræðslunni og gestir leituðu skjóls vegna óveðurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd