Tugir Íslendinga, þar á meðal fjölskyldur með ung börn, voru skildir eftir á flugvellinum í Alicante á Spáni í nótt vegna bilunar sem kom upp í flugvél Icelandair. Allir farþegarnir voru komnir um borð í flugvélina þegar bilun á neyðarútgangi hennar varð til þess að hún var rýmd af farþegum og farangri og einungis helmingur farþega fékk að fara aftur um borð.