Yfir 300.000 hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni vegna skógarelda. Áætlað er að um 420 ferkílómetra svæði hafi orðið eldi að bráð í Frakklandi. Þar hafa yfir 220.000 verið flutt frá heimkynnum sínum í suðvesturhluta landsins. Um 55.000 var gert að yfirgefa þorp nærri Bordeaux í gærkvöld og nótt.Þetta eru meðal umfangsmestu rýminga á friðartímum í sögu Frakklands.Laurent Nunez innanríkisráðherra Frakklands sagði aðstæður til slökkvistarfs í dag vera afar óhagstæðar.Stjórnvöld á Spáni hafa einnig hrint af stað rýmingum sem ná til um 90.000 manns í nágrenni höfuðborgarinnar Madríd, þar sem þrír eldar sameinuðust, og Ávila. Slökkviliði hefur ekki tekist að hefta útbreiðslu eldanna.Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar sagði þörf á loftslagsneyðarsáttmála í landinu. Hann