Sex ára kínversk stúlka lést um viku eftir að hún gekkst undir tilraunakennda genameðferð í fyrra. Læknadeild Jiao Tong-háskólans í Shanghai hefur andlátið til skoðunar en talið er að það hafi viljandi ekki verið minnst á það í birtum vísindagreinum um meðferðina.Meðferðin fólst í því að þúsundum milljarða vírusa var sprautað í mænu stúlkunnar í von um að þeir næðu til heilans. Þetta átti að laga sjaldgæfan erfðagalla sem veldur skerðingu í vitsmunaþroska.Grein taugavísindamannsins Zilong Qiu sem fjallaði um tengdar rannsóknir á dýrum birtist í Nature og þar var hvergi minnst á stúlkuna. Jiao Tong-háskólinn segist hafa skipað starfshóp til að rannsaka málið.„Læknadeildin hefur ávallt lagt mikla áherslu á aðferðafræði og heilindi í vísindarannsóknum. Hún setur sig alfarið upp á móti rannsók