Allvíðáttumikil lægð við Noreg beinir norðan- og norðvestanátt til landsins. Austanlands er kaldi og strekkingur í dag en annars hægari vindur. Skýjað með köflum á norðurhluta landsins og úrkomulítið en léttskýjað sunnan heiða.Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.Það er hlýjast sunnanlands þar sem hiti fer upp í 18 stig. Við norðurströndina er kaldara og hiti frá 8 stigum.Í nótt og fyrramálið má búast við einhverri rigningu á Norðaustur- og Austurlandi.