Ætlar ekki að boða til snemmbúinna kosninga

Andy Burnham nýr forsætisráðherra Bretlands ætlar ekki boða til snemmbúinna þingkosninga þar í landi. Frá þessu greindi Burnham í sínu fyrsta viðtali sem forsætisráðherra.Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, hefur krafist þess að boðað verði til kosninga þar sem Burnham hafi ekki persónulega fengið umboð kjósenda til að verða forsætisráðherra.„Ég held að fólk vilji þær ekki,“ sagði Burnham sem dró síðan aðeins í land: „Vissulega segja skoðanakannanir að sumir vilji kosningar og aðrir ekki.“Burnham sagði að kjósendur hefðu kosið stefnuyfirlýsingu Verkamannaflokksins í síðustu kosningum. Hann ætli sér að virða þá stefnuyfirlýsingu með aðstoð kollega sinna í breska þinginu.Burnham sagði að það sem væri mikilvægast fyrir sig núna væri að koma Bretlandi aftur á þann stað sem það eigi að vera
Ætlar ekki að boða til snemmbúinna kosninga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd