Íranar saka Úkraínumenn um að hafa ráðist á íranskt kaupskip í Kaspíahafi á laugardag. Einn var drepinn í árásinni og annar særðist. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sagði á samfélagsmiðlum í gær að Úkraínuher hefði gert árásir með langdrægum flugskeytum á skip í Kaspíahafi sem flyttu hergögn sem bendluð væru við Íran. Þá hefðu árásirnar einnig beinst gegn herskipum. SEGJAST ALDREI HAFA SKIPT SÉR AF STRÍÐINU Í ÚKRAÍNU Utanríkisráðuneyti Írans sagði árásirnar á laugardag hafa valdið sprengingu um borð í kaupskipi með þeim afleiðingum að einn lést og annar særðist, líkt og áður segir.„Íslamska lýðveldið Íran hefur aldrei skipt sér af átökunum milli Rússlands og Úkraínu,“ staðhæfði ráðuneytið í yfirlýsingu sinni.Í tilkynningu frá leyniþjónustu Úkraínu á Telegram segir að drónaárásir hafi