23 saknað í Suður-Kínahafi eftir að flutningaskip sökk

Skipið sökk nærri Fiery Cross-rifi.Wikimedia Commons / SkySatBjörgunarmenn leita 23 sem er saknað eftir að flutningaskip frá Víetnam sökk í Suður-Kínahafi. 39 var bjargað.Yfirvöld í Hainan-héraði í suðurhluta Kína segja skipið hafa lent í vanda nærri Fiery Cross-rifi. Þar rekur kínverski sjóherinn herstöð og flugvöll á manngerðri eyju.Áhöfn kínversks björgunarskips varð vör við neyðarblys frá flutningaskipinu. 62 voru um borð, allir frá Víetnam. Sex kínversk skip til viðbótar, björgunarþyrla og víetnamskt skip hafa tekið þátt í leitinni.
23 saknað í Suður-Kínahafi eftir að flutningaskip sökk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd