Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti í gær að hann ætlaði að bjóða sig fram gegn Luiz Inácio Lula da Silva, sitjandi forseta landsins, í forsetakosningum í október.Flavio Bolsonaro er elsti sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu. Hinn síðarnefndi var í fyrra sakfelldur fyrir að hafa skipulagt valdarán gegn Lula og situr í stofufangelsi. Þeir áttust við í forsetakosningum 2022.Á fundi með stuðningsmönnum Frjálslynda flokksins í São Paulo hét Bolsonaro yngri því að lækka skatta og skera upp herör gegn glæpum í landinu, yrði hann kjörinn. Hann lagði áherslu á að hann ætlaði að halda pólitískri arfleifð föður síns á lofti. NÝTUR STUÐNINGS MILEIS OG NETANJAHÚ Javier Milei, forseti Argentínu, hélt ræðu á fundinum þar sem hann gagnrýndi Lula og sagði Bol