Rússlandsher gerði árásir á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í kvöld. Eldar kviknuðu í að minnsta kosti þremur hverfum í árásunum, að sögn borgarstjórans Vitali Klitschko, meðal annars í fjölbýlishúsi í miðborginni.Úkraínski flugherinn segir Rússa hafa beitt skotflaugum í árásunum.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sagði í gær að leyniþjónustugögn bentu til þess að Rússar myndu gera þungar flugskeytaárásir á Úkraínu á næstu 48 klukkustundunum.Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti varaði við því í gær að árásir Rússa væru líklega yfirvofandi.EPA / VALDA KALNINA