Slökktu eld í ruslagámi

Dælubílar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sinntu tveimur útköllum í kvöld.RÚV / Ragnar Visage Eldur kviknaði í ruslagámi við blokk í Hátúni í Reykjavík í kvöld. Slökkviliðsmenn á einum dælubíl slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á staðinn og þeir slökktu hratt í eldinum.Að sögn varðstjóra stafaði engin hætta af eldinum.Þá voru liðsmenn slökkviliðsins sendir af stað í kvöld til að bregðast við minniháttar vatnsleka.
Slökktu eld í ruslagámi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd