Tekjur Írana af olíusölu í takt við áætlanir það sem af er ári

Tvö olíuflutningaskip við írönsku eyjuna Kharg, fyrir stríð.EPA / ABEDIN TAHERKENAREHOlíuráðuneyti Írans sagði í dag að því hefði tekist að selja olíu fyrir samtals 18 milljarða bandaríkjadala á meðan stríðinu stóð og í kjölfar vopnahlésins við Bandaríkin.Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu segir að það hafi selt olíu fyrir 11,5 milljarða Bandaríkjadala í stríðinu og fyrir 6,5 milljarða dala í vopnahléinu. Það sem af er ári nema tekjur Írans af olíusölu 60% af því sem gert var ráð fyrir yfir árið í fjárlögum landsins.Í lok júní hafði Mohammad Bagher Ghalibaf, þingforseti Írans og yfirsamningamaður, hins vegar sagt að Íran hefði verið ófært um að flytja út nokkra olíu meðan á hafnbanni Bandaríkjanna stóð.
Tekjur Írana af olíusölu í takt við áætlanir það sem af er ári

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd