Björgunarsveitarliðar voru fengnir til að taka yfir gæslu á tjaldsvæðinu á Borgarfirði eystra eftir slagsmál í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu kom til átaka á milli þeirra sem önnuðust gæslu á tjaldsvæðinu og gesta.Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.„Lögreglu barst tilkynning um klukkan hálf eitt í nótt vegna slagsmála og tveir menn voru í kjölfarið fluttir til aðhlynningar,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Austurlandi. „Það er ekkert óskaplega mikið sem við getum sagt núna.“Enginn var handtekinn vegna málsins.Fjöldi fólks er kominn á tjaldsvæðið til að sækja hina árlegu Bræðslutónleika. Þar var vonskuveður í nótt og gestir urðu jafnvel að finna sér nýjan svefnstað vegna roks og rigningar. Búist er við álíka veðri í nótt.Kristján Ólafur segir að t