Einhverjir eru væntanlega farnir að telja niður í almyrkva á sólu 12. ágúst. Ógrynni varnings má fá sem helgaður er atburðinum.Sólmyrkvamynt hefur verið slegin, listfengir hanna eigin almyrkvagripi og selja og svo er það hefð hjá mörgum að lyfta glasi með freyðandi drykk á hátíðarstundu – og franskt kampavínshús býður upp á kampavínið Almyrkva af þessu tilefni.En fleiri drykkir helgaðir þessu náttúruundri eru í boði. Eigendur brugghússins Malbyggs höfðu haft spurnir af því að víða erlendis væri bruggaður bjór í tilefni sólmyrkva.Súkkulaði og skyr, klukkur, kampavín, bolir og bjór eru meðal varnings sem er helgaður almyrkva á sólu 12. ágúst. Bjórbruggari vill minna á að eftir myrkvann kemur ljós. BJÓRINN FÆR HEITI SITT FRÁ LJÓSINU „Þannig að við ákváðum að brugga bjór til að minnast þess