Í fjórtándu Druslugöngunni í Reykjavík í dag ítrekuðu druslur af öllum kynjum andstöðu sína við kynferðisofbeldi, nauðgunarmenningu og gerendameðvirkni. Í ávarpi sínu sagði biskup Íslands ofbeldi þrífast í þögninni og það frelsi að segja frá.Silja Höllu- Egilsdóttir er í skipulagsteymi Druslugöngunnar. „Við erum ennþá að af því að það er ennþá verið að tala eins og það sé þolendum að kenna ef þau verða fyrir kynferðisofbeldi, hvort sem það eru karlar, konur, kvár eða hverjir sem er,“ segir Silja.Silja segir margt hafa breyst síðan fyrsta ganga var gengin en breytingarnar gerist of hægt fyrir hennar smekk. Þolendur sem stígi fram séu enn ásakaðir um lygar og athyglissýki.„Við viljum bara helst biðla til ungs fólks líka að fræða sig og mæta og sýna samstöðu af því það er bara aldrei eins mik