Bílaverkstæði á landsbyggðinni koma sífellt fleiri vegfarendum til bjargar yfir sumartímann.„Þetta er orðið það algengt hjá okkur að við erum á vaktinni alveg fram eftir miðnætti á þessum sumartíma. Það er verið að fara í þrjú útköll núna bara fyrir hádegi, í kringum svona 70 kílómetra radíus frá verkstæðinu á Patreksfirði.“ segir Páll Heiðar Hauksson, eigandi Bílaverkstæðisins Smur & Dekk á Patreksfirði, í viðtali við fréttastofu.Síðustu ár hafa fáir nýir bílar komið með varadekkjum. Páll segir stöðuna allt aðra í dag en áður.„Við vorum í mjög fáum svona útköllum fyrir tíu árum síðan.“ „ÞÁ ERTU BARA STRAND“ Nú, þegar fáir nýir bílar koma með varadekki, er orðið miklu algengara að vegfarendur komist ekki leiðar sinnar vegna skemmdra dekkja. Viðgerðasett, kvoða og dæla, dugar oft ekki ti