Í Bordeaux hafa þúsundir fengið skjól í sýningarhöll borgarinnar, sem opnuð var sem fjöldahjálparstöð í gær. Íbúar þorpa vestur af Bordeaux hafa þurft að yfirgefa heimili sín, sem og fólk frá Cap Ferret, vinsælum sumarleyfisstað á ströndinni rétt hjá. Alls hafa um tvö hundruð þúsund manns þurft að flýja þetta ástand.Eldarnir hafa geisað undanfarna daga vestur af Bordeaux og hundruð slökkviliðsmanna hafa barist við þá. 1500 hermenn hafa verið sendir til aðstoðar, og í dag sendi franski flugherinn eina af sínum stærstu flutningavélum - hún bætist í flota flugvéla sem notaðar eru til að berjast við skógareldana.Sebastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands hefur setið á neyðarfundum vegna ástandsins, og Emmanuel Macron Frakklandsforseti lýsti því yfir í dag að öll nauðsynleg aðstoð yrði veit