Ísraelsher handtók tugi Palestínumanna á Vesturbakkanum í dag eftir að minnst fjórir Palestínumenn og tveir ísraelskir hermenn létust eftir skotbardaga í gær.Forsætisráðherra Ísraels hét harkalegum viðbrögðum við atvikinu.Skotbardaginn varð þegar vopnaðir ísraelskir landtökumenn nálguðust palestínskt þorp. Palestínsk yfirvöld á Vesturbakkanum segja að þeir hafi ætlað að ráðast á þorpsbúana.Samkvæmt umfjöllun Reuters hélt Ísraelsher því fyrst fram að fólkið hefði verið í göngu en viðurkenndi síðar að sumir hefðu verið vopnaðir. Skipst var á skotum áður en herinn skakkaði leikinn. VILDI LEGGJA HEIMILI EINS Í RÚST Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, lýsti því yfir að brugðist yrði harkalega við vegna atviksins. Meðal annars vill hann leggja heimili eins Palestínumannanna í rúst o