Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki

Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.Slysið varð í Ganderkesee sem er í Neðra-Saxlandi.Íbúar hússins voru á ferðalagi þegar slysið varð og húsið því mannlaust. Ekki liggur fyrir hvað olli hrapi flugvélarinnar.Hús í 100 metra radíus við slysstaðinn voru rýmd og af öryggisástæðum var lokað fyrir rafmagn í götunni um tíma.
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd