Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Ásgeirsson, aðalvarðstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu. Hann segir að engum hafi orðið meint af.Bílstjóra tókst að aka ökutækinu af veginum áður en kviknaði í og engar umferðartafir urðu vegna atviksins.Halldór segir að bíllinn hafi verið við afleggjarann við Ölkelduháls, rétt fyrir ofan Kambana.