Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur duga ekki til og sjálfsafgreiðslustöðvar sem áttu að stytta ferlið verða í fríi fram eftir sumri.Orð eins og ófremdarástand og öngþveiti hafa verið notuð til að lýsa ástandinu sem hefur skapast á Keflavíkurflugvelli að undanförnu vegna langrar biðar í landamæraeftirliti. NÝTT KERFI ER HELSTI SÖKUDÓLGURINN Það á fyrst og fremst við um farþega sem koma frá löndum utan Schengen-svæðsins. Innleiðing nýs kerfis er helsti sökudólgurinn, segir Bjarni Ólafur Ólafsson, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum. „Þegar Bandaríkjaflugið, Kanada og Bretland eru að koma inn, þá koma inn á vissum tímapunkti kannski 30-33 vélar.“ Hvað er nýtt komu- og brottfararke