Fjölskylda sem býr á Barðaströnd í Breiðafirði tók sig til og útbjó stærðarinnar skilti til að fagna því að ferjan Baldur væri snúin aftur til sinnar reglulegu siglingarleiðar. Hún var send suður til Vestmannaeyja fyrir um sex vikum síðan til að sinna ferjuflutningum þar í fjarveru Herjólfs.