Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi

25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri er einnig í haldi. Fólkið var handtekið eftir að lögregla fékk upplýsingar um að verið væri að flytja sprengju með bíl. Sprengjan var háþróuð, líkt og það er orðað í yfirlýsingu írsku lögreglunnar, sem telur að fólkið hafi ætlað að nota hana í sprengjuárás.Grunur leikur á að hana hafi átt að festa undir bíl í þeim tilgangi að sprengja hann upp.Sprengjan fannst í rassíu lögreglunnar sem beindist gegn lýðveldissinnum. Lögreglan segir fámennan minnihluta enn vera ósáttan við nærri þrjátíu ára samkomulag sem batt enda á blóðug átök milli írskra þjóðernissinna og sambandssinna.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd