Þann 5. nóvember 1626 settist niðurlenski kornkaupmaðurinn Pieter Schagen niður á skrifstofu sinni í Amsterdam og skrifaði bréf. Schagen var rétt tæplega fimmtugur og ekki við eina fjölina felldur. Auk kaupmennskunnar var hann tónlistarmaður góður og allvinsælt tónskáld. Hann sat í stjórn Niðurlenska Vesturindíafélagsins sem annaðist verslun og siglingar vestur um haf þar sem mörg Evrópuríki voru enn að þreifa...