„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur, svo héldum við karlakórstónleika og þegar við fórum að sofa var eiginlega komið slagveður og norðvestan rok.“Þetta segir Magni Ásgeirsson, einn stofnenda og skipuleggjenda Bræðslunnar sem haldin er á Borgarfirði eystra um helgina. Hann segir að þrátt fyrir mikinn viðsnúning í veðri í gærkvöld og nótt hafi ekkert alvarlegt komið upp á.Magni segir að nóttin hafi þó farið í það að koma tjöldum fyrir og passa að allt væri bundið niður. „Við fórum ekkert að sofa,“ segir hann.Slagviðri brast á í gærkvöldi á Borgarfirði eystra þar sem margmenni er til að vera viðstatt Bræðsluna. „Þegar við fórum að sofa var eiginlega komið slagveður,“ segir Magni