Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni og bændur skora á sveitarfélagið að hafna henni um leyfi.Orkusalan vill reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði, allt að 160 m á hæð. Umsagnarfrestur við mat á umhverfisáhrifum rann út fyrir helgi. Landeigendur í grennd við fyrirhugaðar vindmyllur safna nú undirskriftum til að hvetja Múlaþing til að hafna áformum Orkusölunnar. SAFNA UNDIRSKRIFTUM TIL HVATNINGAR MÚLAÞINGS Helga Rún Steinarsdóttir, sauðfjárbóndi á Kirkjubæ sem er í rúmra tveggja km fjarlægð frá Lagarfossvirkjun, stofnaði undirskriftalistann: „Ég vil vera tilbúin með skýra afstöðu þeirra sem búa hérna og nærsamfélagsins þegar Múlaþing fer að taka þetta til sín.“Í