Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjávarúteg geti það haft neikvæð áhrif á fiskvinnslu í landinu.Evrópskir eigendur gætu einfaldlega tekið ákvörðun um að landa aflanum í öðrum löndum þar sem launakostnaður væri lægri. Þetta var á meðal þess sem rætt var í þættinum Sama viðtalið um ESB.Aðspurð hvort ekki væri ósamræmi fólgið í því að íslensk fyrirtæki gætu fjárfest í sjávarútvegi í öðrum löndum en ekki öfugt, sagði Heiðrún að þessar fjárfestingar væru umdeildar.Það að önnur ríki hefðu innleitt vonda stefnu væri ekki góð ástæða til að flytja þau mistök til landsins. Betur færi á því að íslenskar útgerðir yrðu áfram í íslenskri eigu.Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS,
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd