Það var stór dagur hjá Georg Bretaprins á miðvikudaginn en þá hóf hann vegferð sína í þessu lífi sem táningur. Vel var að vonum gert við piltinn og Kensington-höll deildi ljósmynd af honum með afa sínum, Karli Bretakóngi, og eiginkonu hans, Kamillu drottningu.