Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neitað að hleypa þeim inn. Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.„Þeir töldu sig eiga eitthvað vantalað við hann,“ segir Heimir.Mennirnir hafi komið að heimili mannsins í Bríetartúni í Reykjavík og klifrað upp á svalir við íbúð mannsins þegar hann neitaði að hleypa þeim inn. Þaðan komust þeir inn í íbúðina í gegnum glugga og hentu manninum svo fram af svölunum.Heimir segir manninn hafa hlotið ýmsa áverka, þar á meðal beinbrot. Hann hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. ÓSÆTTI UNGMENNA LEIDDI TIL RYSKINGA Lögregla hafði einnig afskipti af samkomu ungmenna við Rafstöðvarveg í Reykjavík vegn