Gríðarlegir gróðureldar hafa breiðst út í Frakklandi og á Spáni og samtals hafa yfir 220 þúsund manns þurft að flýja heimili sín.Spánn lýsti yfir neyðarástandi vegna eldanna á fimmtudagskvöld. Fyrir utan höfuðborgina Madríd náðu tveir stórir eldar saman og sá þriðji var ekki langt undan. Talið er að þetta séu verstu gróðureldar sem hafa geisað á svæðinu nálægt höfuðborginni.Búist er við hvassari vindátt síðar í dag og stjórnvöld hafa lýst yfir áhyggjum af því að vindurinn gæti hindrað slökkvistarf og aukið eldana enn frekar.Í Frakklandi suðvestanverðu var fólk beðið um að yfirgefa Cap Ferret-nesið. Þar hafa 190 ferkílómetrar orðið eldinum að bráð.Þúsundir hafa flúið úthverfi Bordeaux-borgar vegna elda á svæðum í kringum hana.Evrópusambandið hefur sent báðum ríkjum liðsauka til að berjast v