Hiti allt að 18 stigum en hvasst fyrir austan

Í dag verður norðlæg átt, víða gola og léttskýjað á landinu. Hiti á bilinu 11-18 stig en dálítil væta og mun svalara á Norður- og Norðausturlandi.Fyrir austan verður nokkur vindur, norðvestan 10-18 m/s, og enn hvassara á Suðausturlandi og Austfjörðum þar sem vindstrengjum er spáð fram undir hádegi. Þar geta skapast varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, einkum framan af degi.Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni.Á morgun verður áfram norðan- og norðvestanátt, kaldi eða strekkingur austanlands en vindur annars hægari. Yfirleitt verður þurrt og skýjað með köflum. Áfram verður bjart á sunnanverðu landinu. Hiti 8-18 stig – lægstur við norðurstöndina og hæstur sunnan heiða.
Hiti allt að 18 stigum en hvasst fyrir austan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd