Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í nótt en hann hafði farið yfir hámarkshraða á stofnbraut. Við nánari athugun reyndist ökumaðurinn vera eftirlýstur og var hann handtekinn á vettvangi og færður á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa.