Birgitta Ósk er 23 ára Eyrbekkingur, fædd og uppalin á staðnum. Birgitta var að gefa út sína fyrstu ljóðabók með ljóðum eftir sjálfa sig en bókin heitir „Þegar allt er kyrrt“. Eftir sumarið flytur Birgitta til Danmerkur þar sem hún mun hefja nám í íþróttalýðháskóla. Bókin er því líka hluti af fjáröflun fyrir þetta nýja ævintýri hennar.„Ég var búin að vera að skrifa rosalega lengi og hef verið að safna þeim saman en svo fór ég í FSu og kláraði þá hestabrautina og stúdentsbrautina og hluta af náttúrufræðibrautinni og þá vantaði mig eitthvað að gera þannig að ég fór að skrifa og þá endaði ég með að fara í sjúkraliðanám og kláraði sjúkraliðann þannig að það var svolítið mikið að gera,” segir Birgitta Ósk.18 frumsamin ljóð eru í nýju bókinni.„Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að skrifa þessa bók