Tvær sprengjur voru sprengdar í Damaskus á meðan Macron Frakklandsforseti var þar í heimsókn 7. júlí , fyrstur evrópskra leiðtoga frá því að uppreisnarsveitir steyptu Bashar al-Assad forseta af stóli í desember 2024 og Ahmed al-Sharaa tók þar völdin í framhaldinu.Átján manns særðust í sprengingunum, sem urðu ekki ýkja fjarri hótelinu sem Macron bjó á. Fyrr í mánuðinum fórust níu manns þegar sprengja var sprengd á kaffihúsi í borginni. Þessar árásir koma á versta tíma og stofna brothættum friðinum sem ríkt hefur í landinu undanfarin misseri í voða. EINS KONAR FRIÐUR EFTIR MARGRA ÁRA BLÓÐUGT BORGARASTRÍÐ Landið var í algjörri upplausn þegar al-Sharaa tókst að sameina margar og ólíkar uppreisnarhreyfingar í allsherjarsókn gegn her Assad-stjórnarinnar og taka völdin. Þetta tókst honum eftir