Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöld eða nótt tilkynning um líkamsárás þar sem einum var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Í dagbók lögreglu segir að meintir gerendur hafi verið handteknir skammt frá vettvangi og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minni háttar áverka.Ekki kemur fram hvar árásin átti sér stað en tilkynningin barst lögreglustöð 1 sem sinnir verkefnum í Reykjavík vestan Elliðaáa og á Seltjarnarnesi.Þangað barst einnig tilkynning um sölu fíkniefna í heimahúsi. Lögreglumenn handtóku einn á vettvangi með mikið magn fíkniefna og fjármuna.Lögregluþjónar af stöð 3, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, handtóku mann sem ógnaði öðrum með hnífi. Hann stóð einnig í hótu