Upptök hrinunnar eru um 60 kílómetrum suðvestur af Eldey.RÚV / Ragnar VisageUpp úr klukkan fimm í morgun hófst jarðskjálftahrina um 60 kílómetrum suðvestur af Eldey.Nokkrir skjálftar um og yfir 3 að stærð hafa mælst í hrinunni. Þeirra stærstur var skjálfti af stærðinni 3,4 sem varð laust fyrir klukkan hálf sex.Í athugasemd jarðvísindamanns sem birt er á vef Veðurstofunnar segir að skjálftar af svipaðri stærð séu algengir á þessu svæði, sem og skjálftahrinur.