Tilraunaflug SpaceX heppnaðist vel

Tilraunaflug Starship-risaeldflaugar geimferðafyrirtækisins Space X í gærkvöld heppnaðist vel.Flaugin tók á loft frá Texas skömmu fyrir klukkan 23 að íslenskum tíma. Hún lenti í Indlandshafi rúmlega klukkustund síðar.„Starship er ósködduð, hún flýtur á hafinu og sendir mæligögn,“ sagði Elon Musk, stofnandi og forstjóri SpaceX, skömmu eftir að flaugin lenti.„Þetta er í fyrsta sinn sem Starship-eldflaug lendir á hafinu heil á húfi,“ sagði Dan Huot, talsmaður fyrirtækisins.Þetta er þriðja gerð eldflaugarinnar og aðalmarkmið eldflaugaskotsins var að kanna hvernig breyting á hönnun flaugarinnar myndi reynast.
Tilraunaflug SpaceX heppnaðist vel

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd